Persónuafsláttur

Reiknivél staðgreiðslu

Allir sem náð hafa 16 ára aldri á tekjuárinu og eru heimilisfastir á landinu eiga rétt á persónuafslætti. Sama gildir um þá sem hafa rétt til að halda hér á landi skattalegu heimili þrátt fyrir dvöl erlendis vegna náms eða veikinda. Hjá þeim sem ná 16 ára aldri á tekjuárinu reiknast fullur persónuafsláttur fyrir allt árið.

Persónuafsláttur er 50.792 kr. á mánuði á árinu 2021. (Sjá nánar)

Hver og einn launamaður ber ábyrgð á að gefa sínum launagreiðanda réttar upplýsingar um skattþrep til að tryggja að rétt staðgreiðsluhlutfall sé dregið af laununum og að nýting persónuafsláttar sé með réttum hætti.

Upplýsingar um skattþrep

Leiðbeiningar

Hvernig nýti ég persónuafslátt?

Launamaður upplýsir launagreiðanda sinn um hvort nota eigi persónuafslátt við útreikning staðgreiðslu og þá hversu hátt hlutfall. Auk þess þarf launamaður að tilgreina í hvaða skattþrepi reikna á skatt hans af, ef ekki í því lægra. Ef launamaður á uppsafnaðan persónuafslátt eða vill nýta persónuafslátt maka upplýsir hann launagreiðanda um það. Launamaður getur fengið upplýsingar um nýttan persónuafslátt á þjónustusíðu Skattsins, www.skattur.is. Sé þess óskað getur launamaður sótt þangað yfirlit yfir nýttan persónuafslátt á tekjuárinu til að framvísa hjá launagreiðanda.

Horfa á leiðbeiningarmyndband (opnast á youtube)

Information available in English

Leiðbeiningar um hvar upplýsingar um nýttan persónuafslátt er að finna - fjögur skref

1. Til að sækja upplýsingar um nýtingu persónuafsláttar er nauðsynlegt að skrá sig inn á þjónustuvef Skattsins með rafrænum skilríkjum eða veflykli.

Innskráningarsíða þjónustuvefs RSK. Bent á innskráningu með rafrænum skilríkjum

2. Eftir innskráningu má annað hvort smella á „skoða staðgreiðslu“ til að skoða upplýsingar um þær tekjur sem launagreiðendur þínir hafa sent skattayfirvöldum innan tekjuársins eða fara beint í að sækja yfirlit til að skila til launagreiðanda með því að smella á „yfirlit til launagreiðanda“. Leiðbeiningar með yfirlitinu eru í skrefi 4.

Eftir innskráningu er tvennt í boði, að sækja yfirlit til launagreiðanda eða skoða staðgreiðsluyfirlit

3. Ítarlegar upplýsingar um nýtingu persónuafsláttar má fá með því að smella á hnappinn „ráðstöfun persónuafsláttar“. Til að sækja yfirlit til að framvísa hjá launagreiðanda er smellt á hnappinn „yfirlit launagreiðanda“.

Úr staðgreiðsluskrá má smella á hnappinn "yfirlit til launagreiðanda"

4. Yfirlitið yfir nýttan rafrænan persónuafslátt er hægt bæði hægt að prenta út og sækja á pdf formi. Birtast hér aðeins upplýsingar um nýttan persónuafslátt, en ekki upplýsingar um tekjur eða annað sem að er launagreiðanda óviðkomandi.

Yfirlit til launagreiðanda má sækja á Pdf formi með því að smella á viðeigandi hnapp.

Skipting persónuafsláttar milli launagreiðenda

Vilji launamaður nýta persónuafslátt sinn hjá fleiri en einum launagreiðanda þarf hann að upplýsa þá um hversu hátt hlutfall á að nota hjá hverjum fyrir sig. Hér má finna reiknivél staðgreiðslu sem getur auðveldað við ákvörðun um nýtingu persónuafsláttar miðað við tekjur.

Horfa á leiðbeiningarmyndband um skiptingu persónuafsláttar milli launagreiðenda (opnast á youtube)

Skipt um vinnu

Þegar skipt er um vinnu er mikilvægt að láta fyrri launagreiðanda vita hvenær notkun persónuafsláttar á að ljúka og þeim nýja hvenær notkun hefst þar.

Horfa á leiðbeiningarmyndband um persónuafslátt þegar skipt er um vinnu (opnast á youtube)

Upplýsingar

Uppsafnaður persónuafsláttur

Launagreiðanda er heimilt að taka tillit til persónuafsláttar sem, samkvæmt upplýsingum frá launamanni, hefur ekki verið nýttur það sem af er árinu. Upplýsingar um nýttan persónuafslátt innan ársins getur launamaður fundið á þjónustusíðu Skattsins, www.skattur.is og framvísað yfirliti þess efnis til launagreiðanda sé þess óskað. Eigi launamaður uppsafnaðan persónuafslátt í lok árs færist hann ekki yfir á nýtt staðgreiðsluár. Sérstakar reglur gilda um uppsöfnun persónuafsláttar fyrir erlendis búsetta, sbr. kafla um flutning til/frá landinu. 

Til að ákvarða þá fjárhæð sem launamaður á af uppsöfnuðum persónuafslætti þarf að margfalda persónuafslátt hvers mánaðar með fjölda mánaða sem liðinn er af árinu. Frá þeirri fjárhæð skal draga þann persónuafslátt sem nýttur hefur verið á árinu til þessa og fæst þá fjárhæð uppsafnaðs persónuafsláttar.
Sérstakar reglur gilda um uppsöfnun persónuafsláttar fyrir erlendis búsetta, sbr. kafla um flutning til/frá landinu.

Persónuafsláttur maka

Nýti annað hjóna eða sambúðaraðila ekki að fullu persónuafslátt sinn má viðkomandi heimila maka sínum að nýta þann persónuafslátt sem ónýttur er. 

Framvísa þarf yfirliti um nýttan persónuafslátt maka af þjónustusíðu Skattsins hjá launagreiðanda til staðfestingar á samsköttun annars vegar og ónýttum persónuafslætti hinsvegar, ef við á. Komi nafn maka fram á yfirlitinu er launagreiðanda heimilt að nýta persónuafslátt maka.

Hér er átt við hjón sem samvistum eru og sambúðaraðila sem uppfylla skilyrði til samsköttunar og skila sameiginlegu skattframtali. Sjá nánar í kafla um skilyrði fyrir samsköttun.

Skilyrði fyrir samsköttun

Einstaklingar sem búa saman í óvígðri sambúð eiga rétt á samsköttun óski þeir þess báðir skriflega við skattyfirvöld. Með óvígðri sambúð er átt við sambúð tveggja einstaklinga sem uppfylla skilyrði fyrir að vera skráðir í sambúð í Þjóðskrá, enda eigi þeir barn saman eða von á barni saman eða sambúðin hefur varað í samfellt eitt ár hið skemmsta. Umsókn um samsköttun skal skila með skattframtali. Umsókn þarf að vera samþykkt af báðum aðilum og sýna þarf fram á að skilyrði til samsköttunar séu uppfyllt.

Flutningur til/frá landinu

Flytjist menn til eða frá landinu á tekjuárinu eða starfa aðeins tímabundið hérlendis reiknast persónuafsláttur aðeins fyrir þann tíma sem þeir voru hér heimilisfastir. Við útreikning á persónuafslætti er miðað við dagafjölda á dvalartímanum. Athygli er vakin á að erlendir ríkisborgarar frá ríkjum utan EES þurfa að vera með gilt dvalar- og atvinnuleyfi.

Persónuafsláttur erlendis búsettra

Einstaklingar búsettir erlendis eiga almennt ekki rétt á persónuafslætti á Íslandi. Einstaklingar sem dvelja tímabundið á Íslandi vegna starfa hér eiga þó rétt á persónuafslætti miðað við dagafjölda á dvalartímanum.

Námsmenn erlendis

Þeir sem dveljast erlendis við nám geta sótt um að halda hér á landi skattalegri heimilisfesti og haldið þannig öllum réttindum sem heimilisfesti hér á landi veitir, m.a. réttindum til persónuafsláttar. Sækja þarf um árlega í skattframtali. Er það gert með því að haka í reit á forsíðu framtals og láta viðeigandi gögn fylgja. Berist gögn ekki er umsókn hafnað. Tekjur námsmanns erlendis geta komið til skerðingar á rétti til persónuafsláttar á Íslandi.

Persónuafsláttur á móti lífeyris- og fæðingarorlofsgreiðslum

Einstaklingar sem búsettir eru á einhverju öðru Norðurlandanna greiða fullan tekjuskatt og útsvar hérlendis vegna eftirlauna eða lífeyrisgreiðslna frá Íslandi. Tekið er tillit til persónuafsláttar á móti slíkum greiðslum. Sama á við um einstaklinga sem búsettir eru í landi sem ekki hefur gert tvísköttunarsamning við Ísland. Að öðru leyti gilda ákvæði tvísköttunarsamninga ef einstaklingur er búsettur í ríki sem gert hefur tvísköttunarsamning við Ísland. Nánari upplýsingar um skattskyldu.

Tekjur að fullu skattskyldar erlendis

Kveði tvísköttunarsamningur á um að launa- eða lífeyristekjur frá Íslandi séu skattskyldar í búseturíki má sækja um undanþágu frá greiðslu staðgreiðslu á Íslandi á eyðublaði RSK 5.49.

Lægri skattprósenta m.a. vegna stjórnarlauna

Þeir sem njóta frá íslenskum aðilum launa fyrir störf, þar með talin stjórnar-, endur­skoðenda- eða nefndarstörf, eftirlauna, biðlauna, lífeyris, styrkja eða hliðstæðra greiðslna skulu greiða tekjuskatt af þeim greiðslum. Erlendis búsettir aðilar geta sótt um undanþágu og greiða þannig lægri skatt af tekjum hér á landi en enginn persónuafsláttur kemur þá til frádráttar. Sá fyrirvari er gerður að ef launamaður er búsettur í ríki sem gert hefur tvísköttunarsamning við Ísland gilda ákvæði samningsins séu þau frábrugðin íslenskum tekjuskattslögum.

Persónuafsláttur manna með rekstur

Sá sem hefur með höndum sjálfstæðan atvinnurekstur og reiknar sér endurgjald vegna starfseminnar þarf sjálfur að halda utan um fjárhæð persónuafsláttar til að nýta við ákvörðun á staðgreiðslu. Ef um reiknað endurgjald maka er að ræða gilda sömu reglur um persónuafslátt hans og um persónuafslátt launamanna sem starfa við reksturinn.

Persónuafsláttur við andlát

Persónuafsláttur þeirra sem látast á árinu og skilja ekki eftir sig maka reiknast persónuafsláttur til dánardags.

Nýting persónuafsláttar látins maka

Eftir andlát annars hjóna eða annars sambúðaraðila (þegar um er að ræða sambúðarfólk sem uppfyllt hefur skilyrði fyrir samsköttun), er eftirlifandi maka heimilt að nýta persónuafslátt hins látna í níu mánuði, talið frá og með andlátsmánuði. Falli maki frá í maí eða síðar á árinu, færist réttur til nýtingar á hluta persónuafsláttar hans yfir áramót. Reglur um millifærslu persónuafsláttar á þessu níu mánaða tímabili eru þær sömu og gilda um millifærslu persónuafsláttar hjá hjónum.

Álagning

Við álagningu opinberra gjalda kemur persónuafsláttur til lækkunar á reiknuðum tekjuskatti ársins. Það sem ekki nýtist á móti reiknuðum tekjuskatti gengur til greiðslu útsvars. Sá persónuafsláttur sem þá er eftir færist til maka. Sé enn eftir ónýttur afsláttur ganga 20/37 (verður 22/37 frá og með álagningu 2019) af því sem ónýtt er til greiðslu á skatti á fjármagnstekjur. Það sem þá kann að standa eftir fellur niður.

Ábyrgð á réttri nýtingu persónuafsláttar

Launamaður og launagreiðandi bera, skv. reglugerð 535/2016, um persónuafslátt, sameiginlega ábyrgð á ráðstöfun persónuafsláttar. Komi til ofnýtingar hans er það launamannsins að greiða mismuninn. Markvisst er unnið því að stöðva ofnýtingu um leið og hún kemur fram í staðgreiðsluskilum og geta launamenn átt von á því að þurfa að leiðrétta ofnýttan persónuafslátt innan staðgreiðsluársins. Sé það ekki gert getur launamaður þurft að greiða mismuninn auk álags í álagningu árið á eftir þegar tekjuárið er gert upp með skattframtali.

Skattkort lögð af

Í samræmi við breytingar á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, voru skattkort lögð af frá og með árinu 2016. Þótt notkun skattkorta hafi verið hætt þá kallar það ekki á neinar breytingar fyrir launamenn nema einhverjar breytingar komi til t.d. ef hefja á störf á nýjum vinnustað eða breyta nýtingu persónuafsláttar með einhverjum hætti. Nánari upplýsingar þar um er að finna hér að neðan.

Leiðbeiningarmyndbönd

Hvernig nýti ég persónuafslátt?

Skjáskot úr kynningarmyndbandi um persónuafslátt

Hvernig er farið með persónuafslátt þegar þegar skipt er um vinnu eða unnið á tveim stöðum?

Skjáskot úr kynningarmyndbandi um persónuafslátt

Fjárhæðir

    Á mánuði Á ári
Persónuafsláttur 2021 kr. 50.792 609.509

Persónuafsláttur fyrri ára

Árið Persónuafsláttur á mánuði Persónuafsláttur á ári
2020 54.628 kr.  655.538 kr. 
2019 56.447 kr. 677.358 kr.
2018 53.895 kr. 646.739 kr.
2017 52.907 kr. 634.880 kr.
2016 51.920 kr. 623.042 kr.
2015 50.902 kr. 610.825 kr.
2014 50.498 kr. 605.977 kr.
2013 48.485 kr. 581.820 kr.
2012 46.523 kr. 558.385 kr.
2011 44.205 kr. 530.466 kr.
2010 44.205 kr. 530.466 kr.
2009 42.205 kr. 506.466 kr.

Ítarefni

Hvar finn ég reglurnar?

Persónuafsláttur - A-liður 67. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt

Persónuafsláttur í staðgreiðslu - Reglugerð nr. 535/2016, um persónuafslátt

Persónuafsláttur í álagningu - A-liður 67. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt

Skattafsláttur í álagningu - VI. kafla laga nr. 90/2003, um tekjuskatt

Tilhögun staðgreiðslu - II. kafli laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda

Eyðublöð

Umsókn um skattkort fyrir samsköttun í staðgreiðslu - RSK 5.47

Umsókn um undanþágu frá skattlagningu launatekna eða lífeyristekna samkvæmt tvísköttunarsamningi - RSK 5.49

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum