Nordic Smart Government

Samþætting Norðurlandanna með Nordic Smart Government

Nordic Smart Government vinnur að brautargengi metnaðarmáls norrænu forsætisráðherranna um að Norðurlönd verði samþættasta landsvæði í heiminum. Markmiðið er að fækka hindrunum innan svæðisins og auka samstarf og skilning á milli fyrirtækja til að styðja við norræna velferð og vöxt. 

Kynningarmyndband - Hvað er Nordic Smart Government? Nánar tiltekið vinnur Nordic Smart Government að því að Samstarfsyfirlýsing Norðurlanda-Eystrasaltsríkja um stafvæðingu Digital North verði að veruleika. Þar eru kynnt markmið stefnunnar um að svæðið verði í fararbroddi á stafrænu sviði, að auðvelda yfirvöldum og samfélagi að skipta yfir í stafrænt umhverfi, einkum með því að koma á fót sameiginlegu svæði fyrir stafræna þjónustu opinberra aðila yfir landamæri, að styrkja samkeppnishæfni fyrirtækja með stafrænni væðingu og að efla stafræna innri markaðinn á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum.

Vegvísir til framtíðar

Vegvísir er stefnumiðuð áætlun þar sem skilgreind eru markmið og fyrirhugaður árangur. Þar koma fram helstu áfangar eða þáttaskil á þeirri vegferð. Í vegvísi Nordic Smart Government kemur fram hvernig gera á framtíðarsýn Nordic Smart Government að veruleika og þar er skilgreint hvað þarf til.

Vegvísir Nordic Smart Government 
Verkefnaskrá
Verðmætasköpun með stafrænum lausnum (Glærur af opnum fundi fyrir hagaðila 27.11.2020)

Meginmarkmið að staðla stafræn gögn í þágu viðskiptakerfa

Nordic Smart Government miðar að því að gera fyrirtækjum og stofnunum kleift að miðla og sækja viðskipta- og bókhaldsgögn á sjálfvirkan og öruggan hátt í því sem næst rauntíma.

Hugmyndin er að gera viðskiptaferla við kaup og sölu á vöru og þjónustu sjálfvirka með aðstoð stafrænnar tækni þannig að upplýsingar í keðjunni frá birgjum til fyrirtækja og frá fyrirtækjum til viðskiptavina ferðist með stafrænum hætti, bæði í viðskiptum innanlands og á milli Norðurlandanna.

Gert er ráð fyrir að hvert fyrirtæki geymi sín viðskiptagögn í eigin viðskiptakerfum og deili þaðan upplýsingum með stjórnvöldum og öðrum hagaðilum eftir því sem við á, t.a.m. bönkum, tryggingafélögum, endurskoðunarfyrirtækjum og öðrum þjónustuaðilum. Hverju fyrirtæki verður í sjálfsvald sett hvort og þá hvaða gögnum það deilir og með hverjum.

Til að raungera þessa sýn þurfa pantanir, reikningar og kvittanir fyrirtækja og stofnana að vera hvoru tveggja í senn á stafrænu og stöðluðu formi. Stöðlun skiptir höfuðmáli því gögn á stöðluðu formi eru forsenda þess að hægt sé að vinna verk með stafrænum og sem mest sjálfvirkum hætti. Í slíkum tilvikum hentar hvorki að gögn séu á PDF formi né á pappír.

Margþættur ávinningur af aðgengilegum viðskiptagögnum fyrir rekstur fyrirtækja

Ávinningurinn af því að gera viðskiptagögn aðgengileg fyrirtækjum og stofnunum á sjálfvirkan og öruggan hátt í rauntíma er mikill.

Mestur er ávinningurinn í tengslum við sjálfvirkt flæði gagna, til dæmis í bókhaldi og skýrslugerð, sem gerir fyrirtækjum kleift að hagræða í rekstri og auðveldar þeim fjárhags- og birgðastýringu. Þá styður aðgengi að uppfærðum viðskiptagögnum við nýsköpun á sviði stafrænnar þjónustu og auðveldar lánastofnunum sem og tryggingafélögum að vinna lánshæfis- og áhættumat og fyrirtækjum þar með alla fjármögnun, einkum smærri fyrirtækjum.

Þá má einnig nefna eftirfarandi ávinning:

  • Minna stjórnsýsluálag á lítil og meðalstór fyrirtæki.
  • Dregur úr álagi vegna umsýslu og sparar tíma með sjálfvirku bókhaldi og skýrslugerð.
  • Meira gagnsæi í opinberri stjórnsýslu og viðskiptalífi sem eykur traust.
  • Viðskipti milli Norðurlandanna verða einfaldari með samræmdum stöðlum og samkeppni verður virkari.
  • Dregur úr pappírsnotkun, umhverfisvænt.

Ólíkir hagsmunir leggjast á eitt um innleiðingu Nordic Smart Government

Til að framtíðarsýn Nordic Smart Government verði að veruleika verður að tengja saman þá þróun sem á sér stað á mörgum stöðum á Norðurlöndunum og koma á skilvirku samstarfi hagaðila í opinbera og einkageiranum við innleiðingu nauðsynlegra breytinga.

Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Litla Ísland, fagna Nordic Smart Government og telja stafrænu úrræðin sem þar eru kynnt tímabær. Þau hvetja því eindregið til þess að verkefnið hljóti skjóta framgöngu.

Áætlað er að hefja vinnu við fjórða áfanga verkefnisins og þar með innleiðingu breytinga í byrjun árs 2021. Skatturinn mun áfram stýra vinnu íslenska landsteymisins sem nú er skipað fulltrúum frá Skattinum, fjármála- og efnahagsráðuneytinu, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu og Hagstofu Íslands.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um Nordic Smart Government, vegvísi á ensku og viðauka með honum, má finna á heimasíðu verkefnisins www.nordicsmartgovernment.org.


Ítarefni

Niðurstöður könnunnar gerð meðal íslenskra fyrirtækja.

Nordic Smart Government í samráðsgátt.

Vegvísir Nordic Smart Government

Verkefnaskrá

Glærur af opnum fundi fyrir hagaðila 27.11.2020: Verðmætasköpun með stafrænum lausnum

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum