Inneignir

Inneign gjaldanda hjá innheimtumanni ríkissjóðs getur stafað af lögbundnum endurgreiðslum úr skattkerfinu, til dæmis vaxtabætur, barna­bætur og úrskurðaðar endurgreiðslur á virðisaukaskatti. Einnig getur inneign myndast við ofgreiðslur gjaldanda.

Innheimtumanni ríkissjóðs ber að skuldajafna inneignum upp í gjaldfallnar skuldir gjaldanda. Sérreglur gilda um skuldajöfnuð barnabóta og vaxtabóta.

Til þess að hægt sé að greiða út inneignir þarf gjaldandi að hafa skráðan bankareikning. Hægt er að skrá bankareikning á þjónustusíðu ríkisskattstjóra, skattur.is, með því að hafa samband við þjónustuver ríkisskattstjóra í síma 442-1000 eða á rsk@rsk.is

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum