Staðgreiðsla

Í þessum kafla er fjallað um allt sem viðkemur staðgreiðslu opinberra gjalda af tekjum launamanna; hvaða reglur gilda um persónuafslátt, hvernig staðgreiðsla er reiknuð og einnig er boðið upp á reiknivél fyrir útreikning á staðgreiðslu. Sömu reglur gilda einnig um staðgreiðslu af reiknuðu endurgjaldi þeirra sem stunda eigin atvinnurekstur.


Staðgreiðsla 2021

Öllum launagreiðendum er skylt að draga staðgreiðslu opinberra gjalda frá launum og öðrum staðgreiðsluskyldum greiðslum til launamanna og skila í ríkissjóð. Á sama hátt á að draga staðgreiðslu frá reiknuðu endurgjaldi þeirra sem starfa við eigin atvinnurekstur.

Lesa meira

Reiknivél staðgreiðslu

Reiknar út staðgreiðslu af vikulaunum eða mánaðarlaunum. Skrá þarf launafjárhæð, iðgjald í lífeyrissjóð og hlutfall persónuafsláttar sem það skattkort sýnir sem nýtt er hjá launagreiðanda. Einnig er hægt að skrá aðra frádráttarliði til að reikna út útborguð laun.

Lesa meira

Persónuafsláttur

Allir sem heimilisfastir eru á Íslandi og náð hafa 16 ára aldri eiga rétt á persónuafslætti sem má nýta til frádráttar frá afdregnum staðgreiðsluskatti hjá launagreiðanda.

Lesa meira

Skattþrep í staðgreiðslu 2021

Staðgreiðsluskattur sem dregin er af launum er í þrem skattþrepum. Einstaklingar með greiðslur frá fleiri en einum launagreiðanda þurfa að gera ráðstafanir til þess að rétt hlutfall skatts sé dregið af launum þeirra og forðast þannig skattskuld við álagningu.

Lesa meira

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum