Kærur og málsmeðferð

Um stjórnsýslu gilda grunnreglur sem voru lögfestar með lögum nr. 37/1993 um stjórn­sýslu. Hlutverk þeirra er að tryggja vandaða stjórnsýslu. Lögin hafa að geyma lágmarks­reglur um skyldur stjórnvalda og réttindi borgara. Þessar grunnreglur gilda um málsmeðferð hjá innheimtumanni ríkissjóðs líkt og hjá öðrum stjórnvöldum.

Ef gjaldandi er ósáttur við ákvörðun innheimtumanns ríkissjóðs eru honum leiðir færar til að fá hana endurskoðaða innan stjórnsýslunnar.

Stjórnsýslukæra

Hægt er að fá ákvarðanir innheimtumanns ríkissjóðs endurskoðaðar með stjórnsýslukæru til fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Kæra verður ákvörðun innan þriggja mánaða frá því að aðila máls er tilkynnt um ákvörðun.

Einnig er hægt að fara fram á endurupptöku ákvörðunar hjá innheimtumanni.

Umboðsmaður Alþingis

Umboðsmaður Alþingis er kosinn af Alþingi til að hafa sjálfstætt eftirlit með stjórnsýslu landsins. Hann gætir þess að stjórnvöld virði rétt borgara landsins með frumkvæðis­athugunum. Borgarar geta kvartað yfir meðferð stjórnvalda við umboð­smann eftir að hafa tæmt allar kæruleiðir innan stjórnsýslunnar. Kvörtun verður að bera upp við umboðs­mann Alþingis innan árs frá því að endanleg ákvörðun stjórn­sýslunnar liggur fyrir.

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum