Upplýsingar um persónuafslátt fyrir launagreiðendur

Reiknivél staðgreiðslu

Allir sem náð hafa 16 ára aldri á tekjuárinu og eru heimilisfastir á landinu eiga rétt á persónuafslætti. Sama gildir um þá sem hafa rétt til að halda hér á landi skattalegu heimili þrátt fyrir dvöl erlendis vegna náms eða veikinda. Hjá þeim sem ná 16 ára aldri á tekjuárinu reiknast fullur persónuafsláttur fyrir allt árið.

Persónuafsláttur er 50.792 kr. á mánuði á árinu 2021

Hver og einn launamaður ber ábyrgð á að gefa sínum launagreiðanda réttar upplýsingar um skattþrep til að tryggja að rétt staðgreiðsluhlutfall sé dregið af laununum og að nýting persónuafsláttar sé með réttum hætti.

 

Fjárhæðir og skattþrep

    Á mánuði Á ári
Persónuafsláttur 2021 kr. 50.792 609.509

Persónuafsláttur fyrri ára

Árið Persónuafsláttur á mánuði Persónuafsláttur á ári
2020 54.628 kr. 655.538 kr. 
2019 56.447 kr. 677.358 kr.
2018 53.895 kr. 646.739 kr.
2017 52.907 kr. 634.880 kr.
2016 51.920 kr. 623.042 kr.
2015 50.902 kr. 610.825 kr.
2014 50.498 kr. 605.977 kr.
2013 48.485 kr. 581.820 kr.
2012 46.523 kr. 558.385 kr.
2011 44.205 kr. 530.466 kr.
2010 44.205 kr. 530.466 kr.
2009 42.205 kr. 506.466 kr.

Skattþrep í staðgreiðslu

 

Skattþrep 2021TekjubilHlutfall
Skattþrep 1Af tekjum 0 – 349.018 kr.31,45%
Skattþrep 2Af tekjum 349.019 - 979.847 kr.37,95%
Skattþrep 3Af tekjum yfir 979.847 kr.46,25%
Skattþrep 2020 Tekjubil Hlutfall
Skattþrep 1 Af tekjum 0 – 336.916 kr. 35,04%
Skattþrep 2 Af tekjum 336.917 - 945.873 kr. 37,19%
Skattþrep 3 Af tekjum yfir 945.873 kr. 46,24%

Nánari upplýsingar um skattþrep

Skipting á launatímabil

Persónuafslætti á staðgreiðsluári er skipt jafnt niður á alla mánuði ársins. Launatímabil geta verið styttri en einn mánuður, þ.e. 1/2 mánuður, 14 dagar, vika eða styttri ef því er að skipta. Ekkert launatímabil getur þó verið lengra en einn mánuður.

Launagreiðandi skal nota persónuafslátt launamanns við útreikning staðgreiðslu hans, hafi þess verið óskað. Launagreiðanda er heimilt að taka tillit til persónuafsláttar, sem samkvæmt upplýsingum frá launamanni, hefur ekki verið nýttur það sem af er tekjuárinu.

Fjárhæð persónuafsláttar 2021 er samtals 609.509 kr. Við ákvörðun staðgreiðslu opinberra gjalda skal því draga persónuafslátt frá reiknuðum skatti sem hér segir:

Einn mánuðurkr.50.792
Hálfur mánuðurkr.25.396
Fjórtán dagarkr.23.378
Ein vikakr.11.689

Ef launatímabil er annað en að framan greinir skal ákvarða persónuafslátt launatímabils þannig:

Kr. 609.509  x dagafjöldi launatímabilsins
365

 

Hvernig skal nýta persónuafslátt


Þegar hefja á greiðslur til nýs launamanns er mikilvægt að fá upplýsingar frá viðkomandi um eftirfarandi:

  • Hvort nýta eigi persónuafslátt
  • Frá og með hvaða mánuði
  • Upplýsingar um uppsafnaðan persónuafslátt (ef við á)
  • Hvaða skattþrep skal nota

Mikilvægt er að nýta ekki persónuafslátt nema launamaður óski þess og kalla eftir upplýsingum um frá og með hvaða mánuði eigi að nýta. Launamaður kann að vera með aðrar reglulegar greiðslur þar sem nýttur er persónuafsláttur eða eiga inni greiðslur frá fyrri launagreiðanda.

Afdráttur staðgreiðslu í réttu skattþrepi getur komið í veg fyrir að launamaður lendi í skuld við álagningu þegar tekjuárið er gert upp. Því er rétt hjá launagreiðanda að fá staðfest hjá launamanni við upphaf greiðslna í hvaða skattþrepi afdráttur staðgreiðslu skal vera.

Eigi launamaður uppsafnaðan persónuafslátt eða vill nýta persónuafslátt maka upplýsir hann launagreiðanda einnig um það. Launagreiðandi getur óskað eftir staðfestingu á hvoru tveggja af þjónustusíðu launamanns.

Horfa á leiðbeiningarmyndband um skiptingu persónuafsláttar milli launagreiðenda (opnast á youtube) 

Horfa á leiðbeiningarmyndband um persónuafslátt þegar skipt er um vinnu (opnast á youtube)

Uppsafnaður persónuafsláttur

Launagreiðanda er heimilt að taka tillit til persónuafsláttar sem, samkvæmt upplýsingum frá launamanni, hefur ekki verið nýttur það sem af er árinu. Upplýsingar um nýttan persónuafslátt innan ársins getur launamaður fundið á þjónustusíðu Skattsins og framvísað yfirliti þess efnis til launagreiðanda sé þess óskað. Eigi launamaður uppsafnaðan persónuafslátt í lok árs færist hann ekki yfir á nýtt staðgreiðsluár. Sérstakar reglur gilda um uppsöfnun persónuafsláttar fyrir erlendis búsetta.

Til að ákvarða þá fjárhæð sem launamaður á af uppsöfnuðum persónuafslætti þarf að margfalda persónuafslátt hvers mánaðar með fjölda mánaða sem liðinn er af árinu. Frá þeirri fjárhæð skal draga þann persónuafslátt sem nýttur hefur verið á árinu til þessa og fæst þá fjárhæð uppsafnaðs persónuafsláttar.
Sérstakar reglur gilda um uppsöfnun persónuafsláttar fyrir erlendis búsetta, sbr. kafla um flutning til/frá landinu og erlenda starfsmenn.  

Persónuafsláttur maka

Launamanni er heimilt að nýta ónýttan persónuafslátt maka að hluta eða öllu leyti ef skilyrðum fyrir samsköttun eru uppfyllt. Launagreiðandi getur sannreynt samsköttun launamanns með því að óska eftir staðfestingu á nýttum persónuafslætti starfsmanns. Komi nafn maka fram á yfirlitinu er launagreiðanda heimilt að nýta persónuafslátt maka.

Nánari upplýsingar um skilyrði fyrir samsköttun

Flutningur til/frá landinu

Flytjist menn til eða frá landinu á tekjuárinu eða starfa aðeins tímabundið á Íslandi reiknast persónuafsláttur aðeins fyrir þann tíma sem þeir voru hér heimilisfastir. Við útreikning á persónuafslætti er miðað við dagafjölda. Fyrsta mánuðinn er mögulegt að viðkomandi eigi ekki rétt á fullum persónuafslætti sé hafi viðkomandi ekki dvalið á landinu allan mánuðinn og hið sama á við um síðasta mánuðinn hafi launamaður yfirgefið landið.

Þegar reikna á persónuafslátt fyrir fjölda daga þarf að deila heildarpersónuafslætti ársins með dagafjölda (365 eða 366 þegar hlaupár er) til að finna fjárhæð persónuafsláttar hvers dags. Sú fjárhæð er svo margfölduð með fjölda daga sem um ræðir.

Erlendir starfsmenn

Erlendis ríkisborgarar sem starfa hér á landi eiga rétt á persónuafslætti frá komudegi til landsins. Sé um að ræða tímabundna dvöl hér á landi reiknast persónuafsláttur aðeins fyrir þann tíma sem dvalið var hér á landi. Fyrsta mánuðinn er mögulegt að viðkomandi eigi ekki rétt á fullum persónuafslætti sé hafi viðkomandi ekki dvalið á landinu allan mánuðinn og hið sama á við um síðasta mánuðinn hafi launamaður yfirgefið landið.

Þegar reikna á persónuafslátt fyrir fjölda daga þarf að deila heildarpersónuafslætti ársins með dagafjölda (365 eða 366 þegar hlaupár er) til að finna fjárhæð persónuafsláttar hvers dags. Sú fjárhæð er svo margfölduð með fjölda daga sem um ræðir.

Sé um að ræða endurkomu starfsmanns sem dvalið hefur erlendis frá fyrri starfslokum má ekki nýta uppsafnaðan persónuafslátt frá áramótum. Rétt er að gera ráðstafanir í launakerfi við starfslok til að hindra uppsöfnun.

Athygli er vakin á að erlendir ríkisborgarar frá ríkjum utan EES kunna að þurfa dvalar- og atvinnuleyfi til að þeim sé heimilt að starfa hér á landi. 

Persónuafsláttur eftir fæðingarorlof og/eða leyfi

Eftir að launamaður kemur aftur til starfa eftir leyfi, s.s. fæðingarorlof, ber launagreiðanda að spyrja um stöðu persónuafsláttar. Ekki er heimilt að nýta uppsafnaðan persónuafslátt á meðan á leyfi stóð nema staðfest sé að hann hafi ekki verið nýttur hjá t.d. fæðingarorlofssjóði á meðan.

Gott er að gera viðeigandi ráðstafanir í launakerfi til að stöðva uppsöfnun persónuafsláttar á meðan á leyfi stendur.

Persónuafsláttur við andlát

Persónuafsláttur þeirra sem látast á árinu og skilja ekki eftir sig maka reiknast persónuafsláttur til dánardags.

Nýting persónuafsláttar látins maka

Eftir andlát annars hjóna eða annars sambúðaraðila (þegar um er að ræða sambúðarfólk sem uppfyllt hefur skilyrði fyrir samsköttun), er eftirlifandi maka heimilt að nýta persónuafslátt hins látna í níu mánuði, talið frá og með andlátsmánuði. Falli maki frá í maí eða síðar á árinu, færist réttur til nýtingar á hluta persónuafsláttar hans yfir áramót. Reglur um millifærslu persónuafsláttar á þessu níu mánaða tímabili eru þær sömu og gilda um millifærslu.

Ábyrgð launagreiðenda

Ábyrgð á réttri nýtingu persónuafsláttar

Launamaður og launagreiðandi bera, skv. reglugerð 535/2016, um persónuafslátt, sameiginlega ábyrgð á ráðstöfun persónuafsláttar. Komi til ofnýtingar hans er það launamannsins að greiða mismuninn. Unnið er markvisst að því að stöðva ofnýtingu um leið og hún kemur fram í staðgreiðsluskilum og geta launamenn átt von á því að þurfa að leiðrétta ofnýttan persónuafslátt innan staðgreiðsluársins. Sé það ekki gert getur launamaður þurft að greiða mismuninn auk álags í álagningu árið á eftir þegar tekjuárið er gert upp með skattframtali.

Persónuafsláttur manna með rekstur

Sá sem hefur með höndum sjálfstæðan atvinnurekstur og reiknar sér endurgjald vegna starfseminnar þarf sjálfur að halda utan um fjárhæð persónuafsláttar til að nýta við ákvörðun á staðgreiðslu. Ef um reiknað endurgjald maka er að ræða gilda sömu reglur um persónuafslátt hans og um persónuafslátt launamanna sem starfa við reksturinn.

Skattkort lögð af frá og með árinu 2016

Jafnvel þó notkun skattkorta verði hætt kallar það ekki á neinar breytingar fyrir launagreiðendur á notkun persónuafsláttar launamanna sinna. Nýtingin verður áfram með sama hætti og á síðasta launatímabili 2015, nema launamaður óski sérstaklega eftir breytingum þar á.

Á hinn bóginn verður að taka upp nýtt verklag þegar starfsmaður vill breyta nýtingu persónuafsláttar og þegar nýr starfsmaður kemur til starfa. Hann þarf ekki að framvísa skattkorti með upplýsingum um nýtingu persónuafsláttar eins og áður hefur verið. Þess í stað upplýsir launamaður launagreiðanda um hvort nýta eigi persónuafslátt við útreikning staðgreiðslu og þá hversu hátt hlutfall. Eigi launamaður uppsafnaðan persónuafslátt eða vill nýta persónuafslátt maka upplýsir hann launagreiðanda um það. Auk þess þarf launamaður að tilgreina í hvaða skattþrepi reikna á skatt hans af, ef ekki í því lægsta. Mikilvægt er að launagreiðandi afmarki vel upphaf og lok á nýtingu persónuafsláttar og brýnt að vekja máls á mögulegri skörun í tíma á launagreiðslum og nýtingu persónuafsláttar hjá fyrri launagreiðanda.

Að halda utan um upplýsingar um persónuafslátt

Vilji launagreiðandi halda utan um upplýsingar um notkun persónuafsláttar sem hann fær frá launamönnum sínum getur launagreiðandi komið upp hverju því verklagi sem best hentar á hverjum vinnustað svo hægt sé að staðfesta að farið sé að óskum launamanns.

Hvað á að gera við gömlu skattkortin?

Eftir þessa breytingu missa gömlu skattkortin sitt fyrra gildi og hafa enga merkingu fyrir launagreiðendur aðra en staðfestingu á með hvaða hætti þeir launamenn sem hjá honum starfa hafi óskað eftir að persónuafsláttur þeirra verði nýttur. Heimilt er að farga skattkortum þeirra sem starfa hjá launagreiðanda eftir að viðeigandi ráðstafanir hafa verið gerðar sem og skattkortum þeirra sem starfa ekki lengur hjá launagreiðanda.

 

Til baka

Þessi síða notar vefkökur. Lesa meira Loka kökum